13.07.10 - 10:08
Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmarkvörður Norður Írlands í Grindavík (Staðfest)

Emma Higgins á Laugardalsvelli 19. júní. Hún er gengin til liðs við Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennalið Grindavíkur hefur fengið liðsstyrk fyrir síðari hlutann í Pepsi-deild kvenna því Emma Mary Higgins landsliðsmarkvörður Norður Írlands er gengin til liðs við félagið.
Higgins kom til landsins í fyrradag og mun fá félagaskipti þegar félagaskiptaglugginn opnar hér á landi á fimmtudag.
Hún er því ekki kominn með leikheimild fyrir leikinn annað kvöld gegn Þór/KA á Akureyri.
Higgins mun leysa stöðu Helen Alderson sem hefur varið mark liðsins í sumar en sú mun snúa aftur til æfinga hjá Sunderland í vikunni og leikur sinn síðasta leik hér á landi í kvöld.
Ása Dögg Aðalsteinsdóttir hóf tímabilið með Grindavík en meiddist og var frá í einhvern tíma svo Alderson var fengin til liðsins. Ása Dögg var á láni frá Val og ákvað að snúa aftur þangað í stað þess að taka stöðu Alderson og því ákvað félagið að leita til Higgins.
Hún er þriðja landsliðskonan frá Norður Írlandi í liði Grindvíkur því þar eru einnig þær Sarah McFadden og Rachel Furness. Allar léku þær með Norður Írlandi í 2-0 tapi gegn Íslandi á Laugardalsvelli 19. júní.