Íslenski landsliðsframherjinn Kolbeinn Sigþórsson skoraði tvö mörk í 3-0 sigri AIK á Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Kolbeinn, sem er 29 ára gamall, hefur verið að glíma við þrálát og erfið meiðsli frá því EM í Frakklandi lauk fyrir þremur árum en síðasta árið hefur hann verið að koma sér í gang.
Hann samdi við AIK fyrir tímabilið og var aðeins búinn að spila örfáar mínútur fram að leiknum í dag.
Hann fékk tækifærið og nýtti það svo sannarlega en hann kom AIK yfir gegn Elfsborg á 24. mínútu áður en hann gerði annað fimmtán mínútum síðar.
Þetta eru gleðitíðindi fyrir íslensku þjóðina en Kolbeinn hefur verið einn helsti markaskorari landsliðsins síðustu ár og hefur reynst liðinu afar mikilvægur.
Kolbeinn fór af velli á 75. mínútu og urðu lokatölur 3-0. AIK er í 2. sæti með 31 stig en mörkin má sjá hér fyrir neðan.
Kolli kominn með tvennu. 🤩 pic.twitter.com/ag03ikciCI
— Íslendingavaktin (@Islendingavakt) July 13, 2019
Athugasemdir