13.08.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Flavio Roma til AC Milan (Staðfest) - Kalac á förum

Flavio Roma handsamar knöttinn.

Mynd: Getty Images

Flavio Roma handsamar knöttinn.

Mynd: Getty Images
AC Milan hefur fengið ítalska markvörðinn Flavio Roma frá Monaco í Frakklandi.
Roma hefur skrifað undir eins árs samning við AC Milan en hann mun berjast um markvarðarstöðuna við Marco Storari, Dida og Christian Abbiati. Dida og Abbiati eru reyndar báðir að jafna sig af meiðslum í augnablikinu
Ástralski markvörðurinn Zeljko Kalac hefur hins vegar verið látinn fara frá AC Milan.
,,Milan vill þakka Kalac fyrir það sem hann gerði á tíma sínum hjá félaginu og við óskum honum alls hins besta í framtíðinni,\" sagði í yfirlýsingu á heimasíðu AC Milan.

Heimild: Reuters