13.08.09 - 12:47
Magnús Már Einarsson
Kamel Ghilas til Hull (Staðfest)

Phil Brown stjóri Hull.

Mynd: Getty Images

Phil Brown stjóri Hull.

Mynd: Getty Images
Hull City hefur keypt framherjann Kamel Ghilas frá Celta Vigo á Spáni en talið er að kaupverðið sé í kringum tvær milljónir punda.
Ghilas, sem er 25 ára, hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Hull.
Ghilas er frá Alsír en hann stóðst læknisskoðun í gær og gæti dottið beint inn í leikmannahóp Hull fyrir leikinn gegn Chelsea á laugardag.
Fyrr í dag krækti Hull í Stephen Hunt frá Reading en félagið hefur einnig fengið Steven Mouyokolo, Seyi Olofinjana og Jozy Altidore til liðs við sig í sumar.

Heimild: BBC