Fotbolti.net
13.08.09 - 15:18
Magnús Már Einarsson

Michael Mancienne til Wolves á láni (Staðfest)

Michael Mancienne til Wolves á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wolves hefur fengið varnarmanninn Michael Mancienne á láni frá Chelsea.
Mancienne átti í viðræðum við Wolves í morgun og nú er samkomulag í höfn.

Þessi 21 árs gamli miðvörður þekkir til hjá félaginu eftir að hafa verið í láni þar í tvo mánuði á síðustu leiktíð.

Nýliðar Wolves hafa verið að styrkja sig fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni en Mancienne er sjöundi leikmaðurinn sem kemur til félagsins í sumar.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.