Fotbolti.net
13.08.09 - 16:00
Magnús Már Einarsson

Anthony Vanden Borre til Portsmouth á láni (Staðfest)

Anthony Vanden Borre til Portsmouth á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth hefur fengið belgíska leikmanninn Anthony Vanden Borre á láni frá Genoa.
Þessi 21 árs gamli leikmaður getur leikið bæði á miðjunni og í hægri bakverði.

Vanden Borre lék sinn fyrsta landsleik aðeins sextán ára gamall en eftir að hafa byrjað ferilinn hjá Anderlecht þá gekk hann í raðir Fiorentina.

Í fyrra keypti Genoa hann síðan en hann lék 25 leiki með liðinu á síðustu leiktíð.

Vanden Borre gæti leikið sinn fyrsta leik með Portsmouth þegar að liðið mætir Fulham á laugardag en það veltur á því hvort að það takist að ganga frá pappírsmálum í tæka tíð.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.