13.08.09 - 20:42
Gunnar Gunnarsson
Birmingham kaupa Gregory Vignal frá Lens (Staðfest)

Gregory Vignal í leik með Portsmouth gegn Aston Villa árið 2005.

Mynd: Getty Images

Birmingham gengu í dag frá kaupum á fyrrverandi leikmanni Liverpool, Gregory Vignal en hann kemur frá franska 1. deildarfélaginu Lens og gerir eins árs samning við nýliðana í ensku úrvalsdeildinni.
Hinn 28 ára gamli leikmaður var á reynslu hjá Birmingham í æfingaleik gegn Sporting Gijon um liðna helgi og stóð sig greinilega nógu vel til að fanga athygli Alex McLeish þjálfari liðsins.
,,Gregory komst alveg klakklaust í gegnum leikinn gegn Sporting Gijon. Þetta var virkilega góð frammistaða hjá honum og hann sýndi hversu reynslumikill leikmaður hann er,\" sagði McLeish.
,,Hann er frábær íþróttamaður, hreyfanlegur, sterkur og ákveðinn. Hann hefur greinilega vakið hrifningu stuðningsmanna liðsins enda kunna þeir vel að meta vinnusemi hans,\" sagði McLeish að lokum.
Þessi franski vinstri bakvörður er ekki alveg ókunnur McLeish en hann spilaði undir hans stjórn hjá Glasgow Rangers.
Nú er Gregory Vignal hins vegar staðráðinn í að sanna sig í ensku úrvalsdeildinni en þar spilaði hann 11 leiki fyrir Liverpool á árunum 2000-2003 en hann spilaði einnig 14 leiki fyrir Portsmouth leiktíðina 2005/06.

Heimild: Soccernet