Fotbolti.net
13.10.10 - 13:07
Magnús Már Einarsson

Logi Ólafsson tekinn við Selfyssingum (Staðfest)

Logi við undirskriftina á Selfossi í dag.

Logi við undirskriftina á Selfossi í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Logi Ólafsson hefur verið ráðinn þjálfari Selfyssinga en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi nú rétt í þessu. Logi skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
Selfyssingar hafa verið í leit að nýjum þjálfara undanfarið eftir að ljóst var að Guðmundur Benediktsson yrði ekki áfram hjá liðinu.

Logi býr á Arnarhóli í Gaulverjabæjarhreppi og hefur samhliða þjálfun síðustu ár verið íþróttakennari í Menntaskólanum við Hamrahlíð.

Hann stýrði síðast KR en hann var látinn fara í sumar eftir þriggja ára dvöl hjá félaginu.

Logi er afar reyndur þjálfari en hann hefur einnig á ferlinum meðal annars stýrt íslenska karla og kvennalandsliðinu, Víkingi, ÍA og FH.

Selfyssingar leika í fyrstu deild á næstu leiktíð en liðið endaði í neðsta sæti Pepsi-deildarinnar í ár.

Rætt verður við Loga í viðtali hér á Fótbolta.net síðar í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.