Fotbolti.net
13.10.10 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Björgólfur Takefusa í Víking R. (Staðfest)

Björgólfur og Leifur Garðarsson þjálfari Víkings.

Björgólfur og Leifur Garðarsson þjálfari Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Víkingur R. hefur fengið framherjann Björgólf Takefusa til liðs við sig frá KR en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi í Víkinni nú rétt í þessu. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Víking rétt í þessu.
Björgólfur greindi frá því í síðustu viku að hann væri á förum frá KR og nú er ljóst að hann mun leika með Víkingi í Pepsi-deildinni næsta sumar.

Björgólfur, sem er þrítugur, hefur leikið með KR frá því árið 2006 og skorað grimmt.

Sumarið 2008 skoraði hann fjórtán mörk og í fyrra fékk hann gullskóinn eftir að hafa skorað sextán mörk í Pepsi-deildinni.

Í sumar skoraði Björgólfur síðan sex mörk í nítján leikjum en undir lok móts mátti hann þola mikla bekkjarsetu. Hann var samningsbundinn KR út næsta ár en félögin komust að samkomulagi um félagaskipti hans.

Á ferli sínum hefur Björgólfur einnig leikið með Þrótti og Fylki hér á landi.

Björgólfur er annar leikmaðurinn sem Víkingur fær til sín síðan tímabilið kláraðist en Pétur Georg Markan kom einnig til félagsins á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.