13.10.10 - 20:55
Hafliði Breiðfjörð
Viðar Sigurjónsson þjálfar Þór/KA áfram (Staðfest)

Viðar Sigurjónsson þjálfar lið Þór/KA áfram.

Mynd: Vefur Þórs

Þór/KA sem endaði í 2. sæti Pepsi-deildar kvenna í sumar hefur gengið frá því að Viðar Sigurjónsson verði áfram þjálfari liðsins.
Þetta kom fram á vef Þórs í kvöld en Viðar hafði stýrt liðinu í síðustu leikjum deildarinnar eftir að Dragan Stojanovic var óvænt vikið úr starfi.
Á vef Þórs staðfestir Unnsteinn Jónsson formaður knattspyrnudeildar Þórs að búið sé ða ganga frá ráðningu Viðars í starfið.
Eins og áður hafði komið fram hafði félagið reynt að fá Helenu Ólafsdóttur fyrrverandi landsliðsþjálfara til að taka við liðinu en hún hafnaði og valdi að taka við 1. deildarliði FH.
Þór/KA náði sínum besta árangri frá upphafi í sumar og Viðar landaði því sem þjálfari síðustu leikina. Liðið leikur í Meistaradeild kvenna á næstu leiktíð.

Heimild: Vefur Þórs