13.10.11 - 13:01
Alexander Freyr Tamimi
Gunnar Oddsson ráðinn aðstoðarþjálfari Keflavíkur (Staðfest)

Gunnar Oddsson ásamt Willum Þór Þórssyni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Oddsson ásamt Willum Þór Þórssyni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflvíkingar hafa ráðið Gunnar Oddsson sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla hjá liðinu til næstu tveggja ára. Þetta kemur fram á vefsíðu Keflvíkinga. Gunnar var Willum Þór Þórssyni til aðstoðar í sumar en Willum er hins vegar tekinn við liði Leiknis og hefur Zoran Ljubicic verið ráðinn aðalþjálfari í hans stað.
Gunnar þjálfaði Keflavík ásamt Sigurði Björgvinssyni árin 1997-1999 en þeir gerðu liðið að bikarmeisturum árið 1997. Gunnar stjórnaði liðinu einnig í nokkrum leikjum árið 2000 ásamt Þorsteini Bjarnasyni.
,,Það er ánægjulegt að búið sé að ganga frá því að þeir Zoran og Gunnar stjórni liðinu en stjórn Knattspyrnudeildar lagði að þessu sinni mikla áherslu á að fá Keflvíkinga til að starfa fyrir félagið. Við bjóðum þá félaga velkomna til starfa,\" segir á vefsíðu Keflvíkinga.