Fotbolti.net
13.10.11 - 14:23
Magnús Már Einarsson

Þórir Áskelsson ráðinn þjálfari Dalvíkur/Reynis (Staðfest)

Þórir Áskelsson er tekinn við Dalvík/Reyni.

Þórir Áskelsson er tekinn við Dalvík/Reyni.

Canon

Mynd: Dalvík/Reynir

Þórir Áskelsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá Dalvík/Reyni sem leikur í annarri deildinni. Þórir tekur við liðinu af Atla Má Rúnarssyni sem hefur þjálfað liðið undanfarin tvö ár.
Í sumar var Dalvík/Reynir lengi vel í spennandi toppbaráttu í deildinni en endaði að lokum í 5. sæti.

Þórir á langan feril að baki sem leikmaður en hann lék lengst af með Þór Akureyri og einnig eitt tímabil með Fram í efstu deild.

Hann var fyrirliði 1. deildarliðs Dalvíkur frá 1999-2001 og lék hann síðan með Reyni Á. í 3.deildinni. Þórir, sem er fertugur, er sjúkraþjálfari að mennt og starfar sem slíkur á Dalvík. Hann er því heimamönnum vel kunnugur en þetta er hans fyrsta starf sem þjálfari meistaraflokks.

,,Stjórn knattspyrnudeildar Dalvíkur/Reynis eru stoltir að kynna Þórir Áskelsson sem nýjan þjálfara fyrir meistaraflokk félagsins,\" segir í yfirlýsingu frá félaginu.

,,Spennandi tímar eru framundan hjá félaginu þar sem leikmannahópurinn er að stærstum hluta byggður upp á ungum heimamönnum. Stefna félagsins er að bæta sig frá ári til árs og telur stjórnin að Þórir sé rétti maðurinn í verkefnið og býður hann velkomin til starfa.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.