Fotbolti.net
13.10.11 - 16:26
Magnús Már Einarsson

Jóhann Kristinn tekur við Þór/KA (Staðfest)

Jóhann Kristinn tekur við Þór/KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Jóhann Kristinn Gunnarsson hefur verið ráðinn þjálfari Þór/KA en þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins.
Jóhann tekur við Þór/KA af Hlyni Svan Eirikssyni sem var á dögunum ráðinn þjálfari kvennaliðs Breiðabliks.

Sjálfur hefur Jóhann stýrt karlaliði Völsungs undanfarin þrjú ár en hann hætti þar eftir tímabilið.

Jóhann Kristinn skrifaði undir tveggja ára samning við Þór/KA nú síðdegis en á sama tíma var Bojana Besic leikmaður meistaraflokks ráðin þjálfari 2. flokks kvenna hjá Þór/KA og Ragnar Hauksson þjálfari 2. flokks karla hjá Þór.

Heimild: Morgunblaðið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.