13.10.11 - 17:12
Hafliði Breiðfjörð
Andri Marteinsson tekur við ÍR (Staðfest)

Andri Marteinsson hefur verið ráðinn þjálfari ÍR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Marteinsson hefur verið ráðinn þjálfari 1. deildarliðs ÍR og gerir þriggja ára samning um þjálfun liðsins. Hann tekur við starfinu af Guðlaugi Baldurssyni sem hætti eftir tímabilið og hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari FH.
Andri Marteinsson er 46 ára gamall. Hann hóf þjálfaraferil sinn í meistaraflokki hjá Haukum og stýrði liðinu í fjögur ár.
Á þeim tíma tókst honum að koma liðinu úr 2. deild karla upp í Pepsi-deildina þaðan sem þeir féllu eftir síðasta tímabil. Hann hætti með Hauka í mars síðastliðnum til að taka við Víkingi en hætti þar eftir slakt gengi á miðju tímabili.
,,Við erum að horfa á að halda áfram með þá þróun sem var þegar Guðlaugur Baldursson var að þjálfa liðið og byggja upp og ala upp á heimamönnum með réttri viðbót í hópinn,\" sagði Hallgrímur Friðgeirsson formaður meistaraflokksráðs karla hjá ÍR við Fótbolta.net í dag.
,,Stefnan er að gera ÍR að stabílu og sterku 1. deildarliði. Hugmyndin er svo að fá spilandi aðstoðarþjálfara og þegar er vinna farin í gang að leita að þeim manni,\" bætti hann við.
ÍR endaði í 9. sæti 1. deildar karla í sumar.