Fotbolti.net
13.11.11 - 13:51
Hafliði Breiðfjörð

Anna Garðarsdóttir og Emma Higgins í KR (Staðfest)

Arna Steinsen verður aðstoðarþjálfari

Anna Garðarsdóttir og Emma Higgins í búningum KR í morgun.

Anna Garðarsdóttir og Emma Higgins í búningum KR í morgun.

Canon

Mynd: Vefur KR

Kvennaboltinn
KR fékk góðan liðsstyrk í kvennaboltanum í dag þegar Anna Garðarsdóttir og Emma Higgins gengu til liðs við félagið. Þá hefur KR gengið frá ráðningu aðstoðarþjálfara en það er Arna Steinsen sem verður Jóni Þór Brandssyni til aðstoðar en þau unnu síðast saman hjá FH þar ti í fyrrahaust. Hún var þjálfari fyrsta Íslandsmeistaraliðs KR árið 1993 og þjálfaði einnig liðið sem varð meistari árið 1998.
Anna Garðarsdóttir kemur frá Aftureldingu þar sem hún var á síðari hluta síðustu leiktíðar eftir að hafa komið til félagsins frá Val.

Anna er 23 ára gömul. Hún hóf feril sinn árið 2003 með HK/Víkingi en gekk til liðs við Val fyrir tímabilið 2007. Hún var á láni hjá Aftureldingu síðari hluta sumarsins 2008 og fór svo aftur til félagsins í júlí í sumar. Hún hefur leikið 69 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 26 mörk.

Emma Higgins er landsliðsmarkvörður Norður Írlands sem varði mark Grindavíkur í Pepsi-deildinni í sumar og spilaði alla 20 leiki liðsins í deild og bikar. Hún hafði komið til félagsins á miðju tímabili 2010.

Hún ákvað svo að dvelja áfram hér á landi en þó samningur hennar við Grindavík renni út í lok næsta árs hefur félagið ákveðið að leyfa henni að fara í KR.

Heimild: Vefur KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.