Fotbolti.net
14.01.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Carlos Kameni til Malaga (Staðfest)

Carlos Kameni til Malaga (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Malaga hefur fengið kamerúnska markvörðinn Carlos Kameni í sínar raðir frá Espanyol.
Malaga fær Kameni frítt í sínar raðir til að byrja með en kaupverðið ræðst síðan af því hvernig Kameni stendur sig og í hvaða sæti liðið endar í La Liga á þessu tímabili.

Kameni kom til Espanyol frá Le Havre á sínum tíma en hann hefur verið í sjö og hálft ár hjá félaginu.

Þessi 27 ára gamli leikmaður hefur ekki verið inni í myndinni síðan hann sakaði Espanyol um metnaðarleysi undir lok síðasta tímabils.

Kameni mun núna reyna að hjálpa Malaga sem ætlar sér stóra hluti á næstu árum eftir að auðkýfingar frá Katar keyptu félagið.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.