14.01.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Kristinn Þór í Þór (Staðfest)

Mynd: Heimasíða Þórs

Mynd: Heimasíða Þórs
Þór hefur fengið Kristinn Þór Björnsson í sínar raðir en hann kemur til félagsins frá Dalvík/Reyni.
Kristinn, sem er bróðir Atla Viðars Björnssonar framherja FH, skrifaði undir tveggja ára samning við Þórsara.
Þessi 22 ára gamli vinstri kantmaður er uppalinn Dalvíkingur en hann hefur leikið með meistaraflokki frá því árið 2005.

Í sumar skoraði Kristinn tíu mörk í annarri deildinni og var í kjölfarið valinn bestur á lokahófi Dalvíkur/Reynis.
Í haust lék Kristinn æfingaleik með Fjölnismönnum en nú er ljóst að hann mun leika með Þórsurum í fyrstu deildinni í sumar.

Heimild: Heimasíða Þórs