Fotbolti.net
14.01.12 - 16:00
Ívan Guðjón Baldursson

Rivaldo kominn til liðs í Angólu (Staðfest)

Rivaldo í leik með AC Milan

Rivaldo í leik með AC Milan

Canon

Mynd: Getty Images

Fyrrverandi leikmaður Barcelona og landsliðsmaður Brasilíu, Rivaldo, er búinn að staðfesta að hann er búinn að skrifa undir samning við Kabuscorp, lið í Angólu.

Rivaldo er 39 ára gamall og hefur verið samningslaus frá því í byrjun desember þegar hann fékk ekki nýjan samning hjá Sao Paulo í Brasilíu, en nú er hann búinn að skrifa undir eins árs samning við Kabuscorp.
,,Eftir að ég fór frá Sao Paulo leið mér eins og ég hefði getuna til að halda áfram að spila,\" sagði Rivaldo.

,,Ég fékk tilboð frá nokkrum löndum en ég valdi Angólu útaf tungumálinu og því mér leist vel á aðstöðuna.

,,Ég hef orðið meistari í hverri deild sem ég hef spilað í og ég hef alltaf lagt mig allan fram fyrir liðið. Ég er viss um að ég verði ánægður hjá Kabuscorp og í Angólu.\"


Rivaldo, sem var valinn besti leikmaður í heimi árið 1999, hefur spilað fyrir Barcelona, AC Milan, Olympiakos og nokkur önnur lið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.