14.05.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Heiðar Atli og Sindri lánaðir frá Stjörnunni í Víking Ó (Staðfest)

Heiðar Atli Emilsson er farinn á láni til Víkings Ó.

Mynd: Fótbolti.net - J.L

Víkingur Ólafsvík fékk í dag til liðs við sig þá Heiðar Atla Emilsson og Sindra Már Sigurþórsson en báðir koma á láni frá Stjörnunni.
Heiðar Atli sem verður tvítugur á árinu hóf meistaraflokksferil sinn á síðustu leiktíð þegar hann spilaði sjö leiki með Stjörnunni í Pepsi-deildinni.
Sindri Már verður 24 ára gamall á árinu en meistaraflokksferill hans hófst árið 2006. Hann hefur leikið sjö leiki í deild og bikar með Stjörnunni, þar af einn í fyrra auk 16 leikja með 3. deildarliði KFG.
Víkingur verður með sex útlendinga á skrá hjá sér í sumar ef Suad Begic aðstoðarþjálfari er talinn með. Hann spilar reyndar lítið enda orðinn 39 ára gamall og óvíst hvort hann verði í hóp.
Hinir eru Tomasz Luba, Aleksandrs Cekulajev, Edin Besilja, Artjom Gonchar, og Eldar Masic. Sjöundi leikmaðurinn með erlent nafn er svo Dominic Bajda en hann telst ekki til útlendinga enda verið hér á landi frá tíu ára aldri.