Fotbolti.net
14.05.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Vignir Benediktsson lánaður frá Breiðablik í Gróttu (Staðfest)

Vignir sem er hér í bláu leikur með Gróttu í sumar.

Vignir sem er hér í bláu leikur með Gróttu í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn Vignir Benediktsson hefur verið lánaður frá Breiðablik til Gróttu. Hann fær leikheimild í dag og getur því leikið með liðinu gegn KA í 1. deildinni í kvöld.
Vignir sem er 23 ára gamall á árinu er í námi í Bandaríkjunum og hefur því ekki verið með Breiðablik á undirbúningstímabilinu. Hann verður með Gróttu fram í miðjan ágúst en þá fer hann aftur til náms í Bandaríkjunum.

Hann er miðvörður sem var á láni hjá 2. deildarliði Njarðvíkur á síðustu leiktíð þar sem hann lék 13 leiki í deild og bikar.

Áður hafði hann verið á láni hjá Reyni Sandgerði sumarið 2008 og árið þar áður með Augnablik sem er varalið Breiðabliks sem leikur í 3. deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.