Fotbolti.net
14.05.10 - 10:46
Magnús Már Einarsson

Arnar Sigurðsson í Tindastól (Staðfest)

Arnar Sigurðsson í Tindastól (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tindastóll hefur fengið kantmanninn Arnar Sigurðsson til liðs við sig frá Breiðablik.
Arnar er margfaldur Íslandsmeistari í tennis en hann hefur einnig leikið fótbolta undanfarin tvö tímabil.

Í yngri flokkunum lék Arnar með Breiðablik en árið 2008 spilaði hann með Augnablik í þriðju deildinni.

Í fyrra ákvað Arnar að leika með Breiðablik en hann lék þrjá leiki í Pepsi-deildinni og tvo leiki í VISA-bikarnum.

Nú hefur Arnar síðan skipt yfir í Tindastól en hann ætlar að leika með liðinu í þriðju deildinni í sumar.

Sjá einnig:
Tólffaldur Íslandsmeistari í tennis spilar með Breiðabliki
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.