Fotbolti.net
14.05.10 - 10:46
Hörður Snævar Jónsson

Bjarki Gunnlaugsson í FH (Staðfest)

Bjarki Gunnlaugsson í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarki Gunnlaugsson hefur fengið leikheimild með FH og gæti leikið með liðinu gegn Haukum á sunnudag.
Bjarki lék síðast með FH fimm leiki sumarið 2008 en hætti á miðju sumri til að taka við þjálfun ÍA.

Bjarki hafði æft mað bróðir sínum Arnari hjá Haukum en hefur nú ákveðið að fara í FH.

,,FH er þannig lið sem vill halda boltanum innan liðsins og spila góðan pressubolta. Þetta er meira þannig sem hann er að spá í, að geta komið þar inn og hjálpað sér þar,\" sagði Bjarki í viðtali við Fótbolta.net á dögunum.

,,Ég hef ekkert æft í allan vetur þannig að þessi næsti mánuður fer bara í að æfa og koma mér í stand. Ég geri mér ekki vonir um að spila eitthvað í þessum mánuði.\"

Arnar og Bjarki hafa leikið saman með nokkrum félögum undanfarin ár, KR, FH, ÍA og Val en í fyrsta sinn í langan tíma munu þeir verða á sitthvorum staðnum.

Ljóst er að mikil spenna er kominn fyrir leiknum á sunnudag en bæði lið gerðu jafntelfi í fyrstu umferð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.