14.05.10 - 15:24
Magnús Már Einarsson
Boban Jovic og James Sheerman í KFR (Staðfest)

Boban Jovic.

Mynd: Hafþór Hreiðarsson

Boban Jovic.

Mynd: Hafþór Hreiðarsson
KFR úr þriðju deild hefur fengið tvo erlenda leikmenn til liðs við sig en leikmennirnir sem um ræðir eru Boban Jovic og James Sherman.
James Sherman er 19 ára gamall en hann kemur frá Fleur de lys welfare í Wales. Sherman lék með unglingaliði Arsenal til fimmtán ára aldurs og er öflugur leikmaður.
James skoraði 19 mörk í 24 leikjum þegar lið hans vann þriðju deildina í Wales en keppni þar lauk nú í byrjun maí. Von er á James til landsins um mánaðamótin maí - júni.
Boban Jovic kemur frá Völsungi en henn hefur verið hér á landi í um það bil tíu ár.
Boban er reyndur miðjumaður en hann hefur lengst af leikið með Völsungi og í fyrra hjálpaði hann liðinu að vinna þriðju deildina.
Sumarið 2008 lék Boban einnig með Selfyssingum en hann mun koma hingað til lands 23.maí.