14.05.10 - 13:51
Magnús Már Einarsson
Sindri Snær og Þórhallur Hinriks í Berserki (Staðfest)

Þórhallur Hinriksson.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Berserkir í þriðju deild hafa fengið markvörðinn Sindra Snæ Jensson á láni frá Þrótti. Báðir markverðir Berserkja eru meiddir og því fékk liðið Sindra Snæ til sín.
Andri Mar Jónsson fór úr axlarlið gegn Skallagrími í Lengjubikarnum og Sverrir Diego fór meiddur útaf í fyrri hálfleik gegn KB í gær. Þá þurfti Baldvin Svavarsson miðvörður liðsins að fara í markið þar sem hann stóð sig með sóma.
Berserkir hafa líka fengið Þórhall Hinriksson frá Víkingi. Þórhallur á að baki 5 landsleiki fyrir Íslands hönd þar sem hann náði að skora 1 mark auk fjölda leikja fyrir yngri landslið.
Þórhallur hefur leikið með KA, Breiðabliki, KR, Val, Þrótti og Víkingi á Íslandi auk þess sem hann lék í Þýskalandi um tíma. Hann er í dag eini leikmaður Berserkja sem hefur skorað í bikarúrslitaleik.
Þá hefur Hans Orri Kristjánsson snúið aftur eftir að hafa leikið í Danmörku um tíma en Hans Orri var fastamaður í hinu öflugu liði Berserkja árið 2008