Fotbolti.net
14.05.10 - 13:52
Hafliði Breiðfjörð

Viktor Örn Guðmundsson í Víking (Staðfest)

Viktor Örn Guðmundsson.

Viktor Örn Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Örn Guðmundsson er farinn til Víkings á láni frá Íslandsmeisturum FH en þetta staðfesti Heimir Gunnlaugsson formaður meistaraflokksráðs félagsins í dag.
Viktor Örn hefur spilað sem vinstri bakvörður eða vinstri kantmaður hjá FH en hefur fá tækifæri fengið nema á undirbúningstímabili.

Hann skoraði sigurmark FH gegn Breiðablik í leik meistara meistaranna á dögunum en þá lék hann á kantinum.

Hann lék 4 leiki í Pepsi deildinni í fyrra og einn í VISA-bikarnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.