14.05.10 - 14:20
Hafliði Breiðfjörð
Stanislav Vidakovic í Fjölni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Fjölnismenn hafa bætt við sig einum leikmanni fyrir átökin í 1. deildinni í sumar en króatíski miðvörðurinn Stanislav Vidakovic er kominn til félagsins frá Bosníu.
„Vida“ eins og hann er kallaður er 25 ára gamall kemur frá úrvalsdeildarliði FK Olimpik Sarajevo í Bosníu.
Honum er ætlað að styrkja varnarleikinn hjá Fjölni sem hefur misst mikinn fjölda leikmanna frá síðustu leiktíð er þeir léku í Pepsi-deildinni.
Fjölnir byrjar mótið á þremur stórleikjum, þeir náðu jafntefli gegn Þór í fyrstu umferðinni og í kvöld koma Víkingar svo í heimsókn í Grafarvoginn. Í þriðju umferðinni mæta þeir svo Skagamönnum.