Fotbolti.net
14.05.10 - 14:23
Hörður Snævar Jónsson

Aron Smárason í láni til Fjarðabyggðar frá Blikum (Staðfest)

Aron (t.h) í leik með Njarðvík.

Aron (t.h) í leik með Njarðvík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Aron Már Smárason leikmaður bikarmeistara Breiðabliks hefur verið lánaður til 1. deildar liðs Fjarðabyggðar.
Aron er 26 ára gamall framherji en hann lék fjóra leiki með liðinu í Pepsi deildinni í fyrra.

Hann er uppalinn hjá Njarðvík og skoraði sex mörk með liðinu í 19 leikjum í deildinni sumarið 2008.

Þetta er annar framherjinn sem Blikar lána en í gær var Högni Helgason lánaður til Hattar á Egilstöðum.

Miklar væntingar eru í Kópavoginum í sumar en liðið ætlar sér að blanda sér í toppbaráttuna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.