14.05.10 - 17:50
Magnús Már Einarsson
Andri, Árni Ingi og Sigurjón Magnús í ÍH (Staðfest)

Árni Ingi Pjetursson.

Mynd: Guðmundur Karl

Árni Ingi Pjetursson.

Mynd: Guðmundur Karl
ÍH hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í annarri deildinni en liðið hefur fengið þrjá nýja leikmenn.
Um er að ræða Árna Inga Pjetursson, Andra Sveinsson og Sigurjón Magnús Kevinsson.
Árni Ingi er þrítugur sóknar og miðjumaður en hann lék með Gróttu í 2. deildinni.
Árið 2007 lék Árni Ingi með Skagamönnum í efstu deild en hann hefur einnig verið á mála hjá KR, Fram, Val og ÍR hér á landi.
Hann lék alls 20 leiki með U-17 ára landsliðinu á sínum tíma og 26 leiki með U-19 ára landsliði Íslands en hann hefur leikið flesta U-19 ára landsleiki fyrir Íslands hönd.
Andri kemur líkt og Árni Ingi frá Gróttu en þar lék hann tólf leiki í 2. deildinni í fyrra. Andri er reyndur varnarmaður en hann verður 35 ára á þessu ári.
Sigurjón Magnús er sóknarmaður sem er uppalinn hjá Fylki en undanfarin ár hefur hann verið á mála hjá ÍR. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Sigurjóni undanfarin ár en hann spilaði ekkert í fyrra.
Allir þessir leikmenn eru komnir með leikheimild með ÍH og geta því leikið með liðinu gegn BÍ/Bolungarvík í fyrstu umferðinni í 2.deild á morgun.