14.05.10 - 16:21
Magnús Már Einarsson
Eiríkur Viljar Kúld í ÍR á láni frá FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

ÍR hefur fengið hægri kantmanninn Eirík Viljar Hallgrímsson Kúld á láni frá FH.
Eiríkur er hægri kantmaður en hann verður 22 ára gamall síðar á þessu ári.
Í fyrra fékk Eiríkur eldskírn sína með meistaraflokki FH þegar hann lék einn leik í VISA-bikarnum og Evrópuleik gegn Aktobe frá Kazakhstan.
Síðari hlutann á síðasta tímabili var hann síðan í láni hjá Haukum þar sem hann skoraði eitt mark í fimm leikjum. Sumarið 2008 var Eiríkur einnig í láni hjá Víkingi R. þar sem han lék þrjá leiki.
Eiríkur Viljar fær keppnisleyfi með ÍR á morgun og því getur hann ekki leikið með liðinu gegn Njarðvík í fyrstu deildinni í kvöld.