14.05.10 - 16:37
Hafliði Breiðfjörð
Elvar Freyr Arnþórsson lánaður í Gróttu (Staðfest)

Elvar er hér hægra megin á myndinni í leik með Víkingum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elvar er hér hægra megin á myndinni í leik með Víkingum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur hefur lánað framherjann Elvar Freyr Arnþórsson út þessa leiktíð og hann er þegar kominn með leikheimild með sínu nýja félagi.
Elvar sem er 22 ára gamall hafði komið til Víking fyrir síðustu leiktíð en missti mikið úr vegna meiðsla og spilaði á endanum bara tvo leiki í 1. deildinni í fyrra.
Hann var ekki í leikmannahópi Víkings í 1. umferð 1. deildarinnar er liðið mætti Fjarðabyggð og fer nú í Gróttu.
Áður en hann kom í Víking hafði hann verið í Stjörnunni þar sem hann skoraði fimm mörk í 19 leikjum.