14.05.10 - 17:07
Hafliði Breiðfjörð
Stefán Örn Arnarson úr Keflavík í ÍA (Staðfest)

Stefán Örn fagnar marki með Keflavík í fyrrasumar með því að heilsa lögregluþjóni eins og þeirra er siður. Það má sjá á þessari samsettu mynd er þeir heilsuðust en Stefán er sjálfur lögregluþjónn og starfar við það á Akranesi í sumar.

Mynd: Víkurfréttir - Hilmar Bragi

Framherjinn Stefán Örn Arnarson er genginn til liðs við ÍA frá Keflavík en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net nú í dag.
,,Ég verð að vinna í löggunni á Skaganum í sumar og því datt Keflavík út úr myndinni en Skagamenn höfðu áhuga og því fór ég þangað,\" sagði Stefán við Fótbolta.net í dag.
Stefán er við nám við Auburn Montgomery háskólann í Bandaríkjunum og hefur verið að spila fótbolta þar í vetur. Hann mun fara aftur utan í ágúst og klárar því ekki tímabilið með ÍA.
Hann er þegar búinn að fá félagaskiptin í gegn og fær leikheimild með ÍA á morgun en verður þó ekki með liðinu gegn Fjarðabyggð á morgun. Hann sagðist hefja æfingar með Skagamönnum á sunnudag.
Stefán Örn verður 29 ára gamall á árinu. Hann skoraði fjögur mörk í 7 leikjum með Keflavík á síðustu leiktíð.