Fotbolti.net
14.05.10 - 20:09
Hafliði Breiðfjörð

Arnljótur Ástvaldsson í KV (Staðfest)

Arnljótur í leik með Þrótti.

Arnljótur í leik með Þrótti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Miðjumaðurinn sterki Arnljótur Ástvaldsson gekk í dag til liðs við 2. deildarlið KV. Arnljótur hefur áður leikið með KR, Þór Akureyri og Þrótti en hann er öllum hnútum kunnugur í Vesturbænum og gengur til liðs við gamla félaga úr hverfinu sínu.
Arnljótur, sem er 27 ára, hefur verið að hrista af sér meiðsli í hné en Vesturbæingar vonast til að hann verði kominn á iðagrænan KV-Park í júní.

Arnljótur bætist í hóp fjölmargra Vesturbæinga sem hafa snúið aftur á fornar slóðir fyrir frumraun félagsins í 2. deild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.