14.05.10 - 20:28
Magnús Már Einarsson
Felix Hjálmarsson í Fjarðabyggð á láni frá Fylki (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Fjarðabyggð hefur fengið Felix Hjálmarsson á láni frá Fylki en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Felix er tvítugur en hann er afar fjölhæfur leikmaður og getur leikið í vörn, miðju og í sókninni.
Þessi hávaxni leikmaður var í leikmannahópi Fylkis í Pepsi-deildinni í fyrra þar sem hann lék þrjá leiki.
Hjá Fjarðabyggð hittir hann fyrir Daníel Frey Guðmundsson en hann er einnig á láni frá Fylki líkt og í fyrra.
Felix ætti að fá leikheimild hjá Fjarðabyggð fyrir leikinn gegn ÍA á morgun og sömu sögu er að segja af Aroni Má Smárasyni sem kom á láni frá Blikum fyrr í dag.

Heimild: Heimasíða Fjarðabyggðar