Fotbolti.net
14.05.10 - 23:40
Magnús Már Einarsson

Dani og Suður-Afríkumaður í ÍBV (Staðfest)

Dani og Suður-Afríkumaður í ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

ÍBV fékk í dag tvo nýja leikmenn til liðs við sig en um er að ræða þá Rasmus Christiansen og Danien Justin Warlem.
Rasmus kemur á láni frá danska félaginu Lingby í tvo mánuði en hann er 21 árs gamall miðvörður.

Rasmus hefur verið hjá Lyngby frá árinu 2007 en hann hefur leikið 36 leiki fyrir yngri landslið Danmerkur. Hann kemur til landsins í fyrramálið.

Þá hefur ÍBV fengið félagaskipti samþykkt fyrir Suður Afrískan sóknarmann, Danien Justin Warlem. Sá er 23 ára og kemur á frjálsri sölu.

Að auki fékk ÍBV hægri bakvörðinn James Hurst á láni frá Portsmouth fyrr í vikunni en hann hefur æft með Eyjamönnum undanfarna daga og verður með í leiknum gegn Val á morgun.

Þá hefur Marko Kazic, 19 ára sonur Dragan Kazic aðstoðarþjálfara og aðalþjálfara 2.flokks ÍBV einnig skipt yfir í ÍBV.

Heimild: Heimasíða ÍBV

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.