14.06.10 - 13:02
Magnús Már Einarsson
Luiz Felipe Scolari tekur við Palmeiras (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hinn reyndi Luiz Felipe Scolari hefur verið ráðinn þjálfari hjá Palmeiras í Brasilíu.
Scolari hefur verið orðaður við mörg félög síðan hann hætti hjá Bunyodkor í Úsbekistan í síðasta mánuði.
Þessi 61 árs gamli þjálfari ákvað hins vegar að semja við Palmeiras en hann þekkir til hjá félaginu eftir að hafa gert góða hluti þar frá 1997-2000.
,,Það var alltaf á hreinu að ég vildi helst snúa aftur til Palmeiras og stuðningsmennirnir geta verið vissir um að þeir verða ánægðir aftur,\" sagði Scolari sem gerði samning við Palmeiras til ársins 2012.
Áður þjálfaði Scolari landslið Brasilíu og Portúgals auk þess sem hann stýrði Chelsea í nokkra mánuði tímabilið 2008/2009 áður en hann var rekinn.

Heimild: Sky