Besta deildin snýr aftur í kvöld eftir landsleikjahlé. Við byrjum í Garðabænum þar sem Stjarnan tekur á móti Val.
Handboltaþjálfarinn Einar Jónsson var með tvo rétta þegar hann spáði í síðustu umferð en núna reynir Hinrik Harðarson, sóknarmaður Odd í Noregi, fyrir sér.
Handboltaþjálfarinn Einar Jónsson var með tvo rétta þegar hann spáði í síðustu umferð en núna reynir Hinrik Harðarson, sóknarmaður Odd í Noregi, fyrir sér.
Stjarnan 2 - 3 Valur (19:15 í kvöld)
Það er ekki nóg fyrir Stjörnuna að fá Gumma Baldvin og Kjartan Má aftur frá ævintýrunum í Kaíró. Það er eitthvað í loftinu í Vals klefanum eftir að Arnór Smára fékk lyklakippuna að Hlíðarenda. Það er ekki nóg að hafa lyklana heldur hefur hann opnað hurðirnar sem þurfti að opna og læsa í vetur.
Vestri 1 - 0 KA (14:00 á morgun)
Vestramenn hafa verið að brýna hnífasettið eftir að hafa lent í KR vélinni og klára þennan leik pro. Vonandi verður hnúturinn hjá Davíð Smára horfinn eftir KR leikinn.
ÍBV 1 - 1 Breiðablik (16:00 á morgun)
Eru Blikarnir nægilega harðir til þess að rölta á Þórsvöllinn og taka þrjá punkta? Ég veit það ekki. Ég held að Tobias Thomsen sé ekkert að halda gleðileg jól yfir því að þurfa taka Herjólfinn og síðan fá þurran Þórsvöllinn í fangið. Oliver Heiðars eða hinn íslenski Adama Traore setur hann ef hann er heill. Láki hefur notað fríið í að eyðileggja nýja gervigrasið á Hásteinsvelli, eðlilega.
Afturelding 1 - 3 ÍA (19:15 á morgun)
Ansi öruggur sigur minna manna sem eru að detta í gang. Jökull frændi og Axel frændi í vörninni gætu haldið Sorpunni á Sævarhöfða hreinni en þetta er önnur skepna. Við þekkjum það að skreppa í Pizzabæinn og fara í burtu með fleiri en eitt stig. Það er stutt í írska daga sem þýðir að Hlynur Sævar verður búinn að smyrja á sig brúnkukreminu sínu fræga og setur hann. Ef Viktor Jóns hefur grillað vel í fríinu þá skorar hann 2-3, hann nefnilega kenndi mér hlut eða tvo þar. Dean Martin er ennþá að jafna sig á enn einu titlalausa tímabilinu hjá Arsenal og hefur verið að taka reiðina út á æfingasvæðinu.
Fram 1 - 2 FH (19:15 á morgun)
Risinn er byrjaður að rumska við sér og einhvern tímann þá vaknar hann. Myndi setja sérsveitina í gæslu á þennan leik því það eru tveir úlfar á hliðarlínunni þarna. Ætli Halli og Laddi loki ekki þessum leik fyrir Fimleikafélagið? Síðan étur pabbi Heimi í skák enn eina ferðina eftir leik.
Víkingur R. 3 - 2 KR (19:15 á mánudag)
Evrópuþynnkan tekur á, höfum verið að sjá það en know how er ómetanlegt. Ég er frammistöðukall en á sama tíma líka málmakall, fáum fínan kokteil þarna. Halldór Snær markmaður KR nældi sér í magapest út í Egyptalandi eftir að hafa verið að stelast í súkkulaðið, maður fékk smjörþef af þeirri pest og ég er ekki viss um að hann sé klár eftir þau átök. Júlíus Mar er í kappi við tímann að ná þessum leik en ég segi alltaf 'tíminn bíður ekki eftir neinum'.
Fyrri spámenn:
Eggert Aron (5 réttir)
Aron Guðmunds (4 réttir)
Atli Barkar (4 réttir)
Maggi Matt (4 réttir)
Eyþór Aron Wöhler (3 réttir)
Þór Llorens (3 réttir)
Einar Jónsson (2 réttir)
Halldór Smári (2 réttir)
Fanndís Friðriks (2 réttir)
Kári Sigfússon (1 réttur)
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 10 | 6 | 2 | 2 | 19 - 11 | +8 | 20 |
2. Breiðablik | 10 | 6 | 1 | 3 | 17 - 16 | +1 | 19 |
3. Valur | 11 | 5 | 3 | 3 | 24 - 16 | +8 | 18 |
4. Stjarnan | 11 | 5 | 2 | 4 | 20 - 20 | 0 | 17 |
5. Vestri | 10 | 5 | 1 | 4 | 12 - 7 | +5 | 16 |
6. ÍBV | 10 | 4 | 2 | 4 | 12 - 15 | -3 | 14 |
7. KR | 10 | 3 | 4 | 3 | 28 - 23 | +5 | 13 |
8. Fram | 10 | 4 | 0 | 6 | 16 - 17 | -1 | 12 |
9. KA | 10 | 3 | 3 | 4 | 10 - 17 | -7 | 12 |
10. FH | 10 | 3 | 2 | 5 | 15 - 14 | +1 | 11 |
11. Afturelding | 10 | 3 | 2 | 5 | 8 - 13 | -5 | 11 |
12. ÍA | 10 | 3 | 0 | 7 | 12 - 24 | -12 | 9 |
Athugasemdir