14.07.10 - 13:25
Hannes Daði Haraldsson
Henry til New York (Staðfest)

Henry kveður nú Barcelona fyrir fullt og allt

Mynd: Getty Images

Franski sóknarmaðurinn Thierry Henry hefur skrifað undir samning við bandaríska liðið New York Red Bulls.
Hann fylgir því fordæmi Roberto Donadoni, Lothar Matthäus og Juan Pablo Ángel sem allir hafa spilað fyrir New York og spilar sá síðastnefndi enn fyrir liðið. Einnig má nefna að knattspyrnustjóri Portúgal Carlos Queiroz stýrði liðinu um tíma.
Henry, sem er 32 ára, mun því væntanlega spila sinn fyrsta leik í treyju New York Red Bulls gegn sínum gömlu erkifjendum í vináttuleik gegn Tottenham þann 22. júlí næstkomandi.
Henry átti eitt ár eftir af samningi sínum við Barcelona en félagið leysti hann undan þeim samningi og gengur hann því frítt í raðir New York.
,,Þetta er nýr og spennandi kafli í mínu lífi. sagði franski sóknarmaðurinn
Þess má einnig geta að Hans Backe fyrrum aðstoðarmaður Sven Göran Erickson hjá Manchester City og Mexíkó er knattspyrnustjóri New York.

Heimild: BBC