14.07.10 - 15:05
Hörður Snævar Jónsson
Kristján Óli Sigurðsson í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Kristján Óli í leik með Selfossi.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Kristján Óli Sigurðsson er genginn í raðir Víkings Ólafsvíkur frá Haukum. Þetta staðfesti Kristján í samtali við Fótbolta.net en hann er á leið til Ólafsvíkur núna.
Hann hefur leikið fimm leiki með Haukum í Pepsi deildinni í ár og einn í bikar.
Hann lék með Reyni Sandgerði á síðustu leiktíð og lék 21 leik og skoraði fimm mörk.
Hann er uppalin hjá Breiðablik og lék með liðinu til ársins 2007 en þá lék hann 13 leiki í efstu deild og skoraði 3 mörk.
Hann var svo hjá Hvöt og Selfossi sumarið 2008.
Víkingur Ólafsvik er í frábærum gír þessa dagana en liðið hefur ekki tapað í 23 leikjum í röð og getur bætt félagsmet ef liðið vinnur BÍ/Bolungarvík á morgun.
Þá er liðið í bikarævintýri eins og flestir vita en liðið vann Stjörnuna í átta liða úrslitum og mætir FH í undanúrslitum.
Kristján fær leikheimild á morgun þegar félagaskiptaglugginn opnar og getur því leikið gegn BÍ/Bolungarvík annað kvöld.