Fotbolti.net
14.07.10 - 18:04
Hörður Snævar Jónsson

Andri Sigurjónsson á láni í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Andri í leik með Stjörnunni.

Andri í leik með Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Stjarnan hefur lánað Andra Sigurjónsson til 2. deildar liðs Bí/Bolungarvíkur.
Bí/Bolungarvík er í öðru sæti deildarinnar og hefur verið að spila vel í sumar.

Andri sem er varnar og miðjumaður lék tíu leiki með Stjörnunni í fyrra í deild og bikar og skoraði eitt mark.

Í janúar fór Andri til þýska félagsins SV Straelen á láni og hann lék þar fram á vor.

Hann er 20 ára gamall og á að baki sex leiki með U17 ára landsliðinu.

Þá fékk Bí/Bolungarvík einnig Tómas Emil Guðmundsson frá Gróttu en hann lék með liðinu á árum áður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.