14.08.09 - 14:40
Hafliði Breiðfjörð
Emil Hallfreðsson til Barnsley (Staðfest)

Emil Hallferðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

Emil Hallfreðsson landsliðsmaður Íslands gekk í morgun í raðir enska Championship deildar félagsins Barnsley á eins árs lánssamningi frá Reggina á Ítalíu.
Emil leikur því með liðinu í deildinni sem er sú næst efsta á Englandi út þessa leiktíð sem var að hefjast.
Emil sem hóf feril sinn hjá FH er 25 ára gamall. HAnn gekk til liðs við Tottenham í janúar árið 2005 og var svo lánaður til Malmö þar sem hann skoraði 8 mörk í 24 leikjum.
Árið 2007 gekk hann svo í raðir Lyn í Noregi en nokkrum dögum síðar keypti Reggina hann óvænt.
Hann á að baki 23 landsleiki fyrir Ísland og mun leika í treyju númer 14 hjá Barnsley.

Heimild: Vefur Barnsley