Fotbolti.net
14.08.09 - 15:00
Gunnar Gunnarsson

Bolton ganga frá kaupum á Lee Chung-Yong (Staðfest)

fimmti nýi leikmaðurinn sem Gary Megson fær til félagsins í sumar

Gary Megson þjálfari Bolton hefur fengið fimm nýja leikmenn til að styrkja liðið fyrir komandi átök í vetur.

Gary Megson þjálfari Bolton hefur fengið fimm nýja leikmenn til að styrkja liðið fyrir komandi átök í vetur.

Canon

Mynd: Getty Images

Lee Chung-Yong landsliðsmaður Suður-Kóreu er genginn til liðs við Bolton. Þessi ungi vængmaður kemur frá FC Seoul fyrir um 2 milljónir punda og gerir þriggja ára samning við félagið. Hann er þar með fimmti leikmaðurinn sem Gary Megson þjálfari liðsins fær til félagsins í sumar.
,,Lee er enn ein góð viðbótin við okkar leikmannahóp. Hann hefur mikinn hraða og góða tækni. Það er frábært að við skulum loksins hafa gengið frá þessum kaupum,\" sagði Gary Megson á opinberri heimasíðu Bolton.

,,Þetta verður mikil áskorun fyrir hann því hann þarf að aðlaga sig að nýju landi og menningu þess ásamt því að glíma við eina erfiðustu deild í Evrópu. Það á eflaust eftir að taka hann smá tíma að venjast umhverfinu en við komum til með að standa eins vel við bakið á honum og við mögulega getum,\" sagði Gary Megson.

Þessi 21 árs gamli leikmaður hefur vakið verðskuldaða athygli með landsliði sínu en hann var í byrjunarliði U-23ja ára landsliðsins á Ólympíuleikunum í Beijing í Kína í fyrra.

Stuðningsmenn hans hafa gefið honum gælunafnið \"blái drekinn\" eftir marga góða leiki en hann á 16 landsleiki með landsliði Suður-Kóreu og hefur skorað í þeim tvö mörk.

Heimild: Goal.com

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.