14.08.09 - 16:27
Hafliði Breiðfjörð
Kasper Schmeichel til Notts County (Staðfest)

Kasper Schmeichel á KR velli með danska U21 árs landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Notts County hefur keypt danska markvörðinn Kasper Schmeichel frá Manchester City en kaupverðið var ekki gefið upp.
Þessi 22 ára gamli markvörður gerði fimm ára samning við Notts Coutny en talið er að hann verði dýrasti leikmaður Notts County frá upphafi.
Hann spilaði aðeins átta leiki fyrir Manchester City í deildinni og var hluta af síðustu leiktíð á láni hjá Coventry.
Hann spilaði undir stjórn Sven Göran Eriksson hjá Manchester City en Eriksson er yfirmaður knattspyrnumála hjá Notts County.
Dýrasti leikmaður Notts County til þessa var Tony Agana sem var keyptur frá Sheffield United árið 1991 á 685 þúsund pund.
Schmeichel er sonur Peter Schmeichel fyrrverandi markmanns Manchester United og Manchester City.

Heimild: BBC