14.08.09 - 19:00
Magnús Már Einarsson
Ari Þór í markið hjá Hvöt (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Hvöt úr 2.deild hefur leyst úr markmannsvandræðum sínum en Ari Þór Kristinsson er á leið til félagsins frá KFR. Hvöt fær undanþágu til að fá Ara þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður.
Nezir Ohran, markvörður Hvatar, er frá vegna meiðsla og fyrr í vikunni voru félagaskipti Atla Jónassonar dreginn til baka því samkvæmt undanþágureglum KSÍ mátti Hvöt einungis fá markvörð sem hefur ekki leikið í þremur efstu deildunum í sumar.
Fyrr í dag auglýsti Hvöt eftir markverði á Fótbolta.net og í kjölfarið höfðu margir samband við Jens Elvar Sævarsson þjálfara liðsins.
Hvöt ákvað að fá Ara til liðs við sig en hann hefur leikið undanfarin þrjú ár með KFR eftir að hafa áður verið í öðrum flokki Fram.