Grorud 2 - 0 Tromsö
1-0 O. Aga ('64)
2-0 Lankhof-Dahlby ('97, víti)
1-0 O. Aga ('64)
2-0 Lankhof-Dahlby ('97, víti)
Adam Örn Arnarson byrjaði á bekknum en fékk að spila síðustu 20 mínúturnar er topplið Tromsö tapaði óvænt fyrir Grorud í norsku B-deildinni.
Tromsö hafði unnið átta fyrstu leiki deildartímabilsins en í dag var liðið stöðvað af Oscar Aga og Magnus Lankhof-Dahlby sem gerðu mörk Grorud í seinni hálfleik.
Adam Örn er 24 ára gamall varnarmaður sem byrjaði fyrstu fjóra leiki tímabilsins en hefur ekki verið í byrjunarliðinu síðan 21. júlí. Hann hefur komið við sögu í sjö leikjum af fyrstu níu eftir að hafa skipt til Noregs frá Gornik Zabrze í pólska boltanum.
Athugasemdir