Fotbolti.net
14.09.11 - 19:03
Hafliði Breiðfjörð

Ármann Smári Björnsson í ÍA (Staðfest)

Ármann Smári ásamt Þórði Þórðarsyni þjálfara (t.v.) og Þórði Guðjónssyni framkvæmdastjóra (t.h.) í dag.

Ármann Smári ásamt Þórði Þórðarsyni þjálfara (t.v.) og Þórði Guðjónssyni framkvæmdastjóra (t.h.) í dag.

Canon

Mynd: Vefur ÍA

Ármann Smári Björnsson er genginn til liðs við ÍA og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Þetta var staðfest á vef ÍA nú í kvöld.

Ármann Smári er fjöhæfur leikmaður sem getur ýmist spilað sem miðvörður eða framherji. Ljóst er að ÍA þarf að styrkja lið sitt á báðum stöðum fyrir baráttuna í Pepsi-deildinni á næsta ári og koma hans því mikill styrkur.
Samningurinn nær út tímabilð 2014. Ármann Smári gengur til liðs við Skagamenn frá Hartlepool í Englandi þar sem hann var á samningi til loka júní á þessu ári. Ármann hóf sinn feril hjá Sindra þaðan lá leið hans til Vals og FH, en frá FH fór hann til Brann í Noregi og að lokum til Hartlepool í Englandi.

,,Skagamenn eru mjög ánægðir með að hafa fengið Ármann Smára til félagsins en hann hefur æft töluvert með félaginu í sumar, en hann er nú búsettur, ásamt fjölskyldunni sinni, hjá tengdaforeldrum sínum á Skaganum,\" segir á vef ÍA þar sem einnig er rætt við Þórð Þórðarson þjálfara liðsins.

,,Það að Ármann Smári sé kominn til okkar er mikil styrkur fyrir liðið, hann er sterkur leikmaður sem getur bæði spilað í vörn og sókn. En það sem skiptir miklu máli fyrir mig og félagið er að hann er frábær karakter sem passar vel inní hópinn, leikmaður sem er með hjartað á réttum stað og er tilbúinn að leggja hart að sér til þess að ná árangri.\" sagði Þórður við undirskrift samnings í dag.

Heimild: Vefur ÍA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.