Fotbolti.net
14.10.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Einarsson í Fylki (Staðfest)

Gylfi Einarsson í landsleik með Íslandi.

Gylfi Einarsson í landsleik með Íslandi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Gylfi Einarsson hefur nú formlega gengið frá samningum við Fylki og skrifaði undir þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt.
Frá þessu var greint á vef félagsins en eins og Fótbolti.net hafði áður greint frá var Gylfi búinn að gera upp hug sinn um að snúa aftur heim til Fylkis frá Brann í Noregi.

Hann er uppalinn Fylkismaður og lék síðast á Íslandi árið 2000 en það ár skoraði hann 10 mörk 18 leikjum fyrir Fylki. Alls hefur hann leikið 54 leiki með Fylki og gert 18 mörk.

Frá Fylki fór hann til Lilleström í Noregi, þar sem hann lék til ársins 2004, alls 83 leiki, en þaðan fór hann til Leeds á Englandi og lék 21 leik með félaginu.

Árið 2008 fór Gylfi aftur til Noregs, og hefur leikið 43 leiki með Brann.

Gylfi hefur leikið 24 landsleiki og skoraði eitt mark, í eftirminnilegum 2-0 sigri á Ítalíu 2004. Hann á einnig fjölda leikja með yngri landsliðunum.

,,Það er sérstakt ánægjuefni að Gylfi hafi kosið að leika aftur fyrir sitt uppeldisfélag og væntum við hjá Fylki þess að hann eigi eftir að styrkja liðið og miðla af reynslu sinni til yngri leikmanna á næstu árum,\" segir á vef félagsins.

Heimild: Vefur Fylkis

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.