Fotbolti.net
14.10.10 - 20:38
Magnús Már Einarsson

Kyle Naughton til Leicester (Staðfest)

Kyle Naughton til Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sven-Goran Eriksson hefur fengið sinn fyrsta leikmann til Leicester en hann hefur krækt í Kyle Naughton á láni frá Tottenham.
Naughton, sem er 21 árs gamall bakvörður, verður á láni hjá Leicester fram í janúar.

Naughton hefur einungis leikið einn leik með Tottenham á tímabilinu, gegn Arsenal í deildabikarnum, og samtals hefur hann leikið fjóra aðalliðsleiki hjá Spors.

Á síðasta tímabili var Naughton á láni hjá Middlesbrough en hann kom til Tottenham frá Sheffield United sumarið 2009.

Naughton mun líklega spila sinn fyrsta leik með Leicester þegar liðið mætir Hull á laugardag.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.