Fotbolti.net
14.10.11 - 08:22
Hafliði Breiðfjörð

Jón Aðalsteinn tekur við þjálfun Þróttar Vogum (Staðfest)

Jón Aðalsteinn til vinstri og Marteinn Ægisson formaður meistaraflokksráðs Þróttar Vogum handsala samninginn.

Jón Aðalsteinn til vinstri og Marteinn Ægisson formaður meistaraflokksráðs Þróttar Vogum handsala samninginn.

Canon

Mynd: Þróttur Vogum

Jón Aðalsteinn Kristjánson hefur verið ráðinn þjálfari Þróttar Vogum sem leikur í 3. deild karla og gerði eins árs samning við félagið.
Jón Aðalsteinn kemur félagsins frá Hamri sem hann stýrði í 2. deildinni undanfarin ár en ákvað að hætta að lokinni síðustu leiktíð.

Hann tekur við þjálfun Þróttar Vogum af Sigurði H. Guðjónssyni sem þjálfaði liðið í sumar.

Næsta leiktíð verður fimmta árið í röð sem Þróttur Vogum tekur þátt í Íslandsmótinu en félagið verður 80 ára á næsta ári og mun þá taka í notkun nýja og glæsilega keppnis- og æfingaaðstöðu.

Jón Aðalsteinn er 34 ára gamall. Hann hefur stýrt liði Hamars undanfarin þrjú ár en hafði áður þjálfað í yngri flokkum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.