14.10.11 - 19:05
Alexander Freyr Tamimi
Dagmar Mýrdal í Stjörnuna (Staðfest)

Dagmar Mýrdal í leik með KR í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Dagmar Mýrdal í leik með KR í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir hefur samið við Stjörnuna um að leika með félaginu næstu þrjú árin.
Dagmar er 21 árs gömul, uppalin KR-ingur og hefur leikið 45 leiki í efstu deild og bikarkeppni með liðinu. Þá var hún á láni hjá FH fyrri helming leiktíðarinnar 2010 og lék þá níu leiki með liðinu í deild og bikar. Verið er að ganga frá formsatriðum tengdum fálagaskiptunum.
,,Við teljum Dagmar vera leikmann sem á mikið inni og trúum því að við getum búið henni umhverfi til að nýta þá hæfileika sem hún býr yfir. Gangi það eftir mun Dagmar klárlega stykja og breikka framlínu okkar og það er aldrei of mikið af góðum framherjum,\" sagði Einar Páll Tamimi, formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Stjörnunni.