Excelsior 1 - 0 Eindhoven
1-0 Reuven Niemeijer('20)
1-0 Reuven Niemeijer('20)
Elías Már Ómarsson var ekki í byrjunarliði Excelsior í kvöld sem mættir Eindhoven í hollensku B-deildinni.
Elías er að jafna sig af ökklameiðslum og missti af síðasta leik liðsins sem tapaðist 3-2 gegn NEC Nijmegen.
Framherjinn kom inná sem varamaður í sigri í kvöld en hann kom við sögu á 63. mínútu seinni hálfleiks.
Aðeins eitt mark var skorað og það gerði Reuven Niemeijer fyrir Excelsior sem fagnaði langþráðum sigri.
Excelsior situr í 14. sæti deildarinnar með 23 stig og er fimm stigum frá umspilssæti í efstu deild.
Athugasemdir